Jæja, þá er komið að því að fara út úr hægindasviðinu, upp úr sófanum og beint á ritvöllinn!
Þetta er semsagt fyrsta blogg undirritaðrar, og mun aðaluppistaðan í því verða dómar um hamingjustundir (happy hour) veitingahúsa og bara (já, bara) í höfuðborginni, þar sem Happy hour klúbburinn, sem er samansafn góðglaðra, geðgóðra og gordjöss miðaldra kvenna, mun fara á kostum. Við munum meta þjónustu, verð, gæði, umhverfi og aðstæður almennt á hávísindalegan hátt, gefa stig eftir flóknum reiknireglum og algórytmum og fella dóma sem jafnast á við svæsnustu hæstaréttardóma. Hávísindalegt og háalvarlegt en þó með kímnum undirtóni ....
Klúbburinn hittist á hálfsmánaðarfresti, á fyrirfram ákveðnum stað sem ein úr hópnum velur. Þar fáum okkur mat og vín á góðu verði, og höfum gaman saman. Það skal samt viðurkennast að vínið hefur meira aðdráttarafl en maturinn. Öl er innri maður og við höfum allar svo gaman af því að skoða innri mann hvor annarar.
Fylgist með í ofnæmi !! Eða var það ofvæni ...
Fyrsti dómurinn fellur bráðum .... THORVALDSEN !!!!
Bloggar | 2.3.2013 | 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bloggfærslur 2. mars 2013
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar